Búin að sprikla í dag, fór í brennslutíma og kennarinn var með fullt af tvíhöfðaæfingum….hum ekki alveg það sem ég þurfti á að halda akkúrat núna, það brakar í vöðvunum á mér núna held ég bara. Ætla að fara og lyfta á morgun og reyna líka að fara á fimmtudaginn.
Fer til London seinnpartinn á fimmtudaginn og vil helst fara með hreina ræktarsamvisku, 4x viku sem sagt. Sé til hvort ég meika það, a.m.k. ætti ég að vera þokkalega fitt í pokalyftingar föstudagsins
Svo er ég búin að panta mér tíma í dekur annað kvöld, maður verður nú að uppgella sig aðeins fyrir árshátíðina

Posted by Holtasóley on 25.4.2006 at 12:41
Nú skil ég af hverju þú ert í ræktinni, hummmm, til þess að geta haldið á pokunum þegar þú ferð að versla þér öll nýju fötin
þú varst að viðurkenna það í blogginu.
Posted by gorkúlan on 25.4.2006 at 14:37
múhahahahahahahaha… ekki var ég búin að fatta þetta Holtasóley;) auðvita…. og ég er glöð að þú komst út í dag Sía mín;) vegna veðurs!!!…. hvar verða börnin? á meðan Londonfataferðsupersgengur yfir:)?þú getur nú varla orðið meiri gella:)… en gangi þér vel dúllan mín kv… mútta;););)
Posted by disav on 25.4.2006 at 16:06
Frábært hjá þér. Það er svo gott þegar maður finnur aðeins til í vöðvunum, þá veit maður að maður er að taka á! Þvílíkt sem ég væri til í að vera fara til London líka. Ég á víst heima í 5kg í lokamarkmið í flokkaskiptingunni hjá þér!
Posted by sætar on 25.4.2006 at 20:34
tvíhöfðaæfingar …grrrrrr…
alltaf jafn dugleg
Posted by Guðrún Kristín on 26.4.2006 at 13:40
Veit ekki baun hvað tvíhöfðaæfingar eru. Kannski kemst ég að því eftir svona 30 kíló……………….
Góða ferð til lands engilsaxa.
Posted by Hildur on 26.4.2006 at 14:04
Góða skemmtun í London beib…
Posted by Blobby on 26.4.2006 at 17:44
ó hvað þú ert dugleg þú átt svo sannarlega skilið hellings dekur góða skemmtun í Lundúnum dúllan mín
p.s. hvað eru tvíhöfðaæfingar???