Af brauðáti

Er á lífi og í góðum gír, þögnin að þessu sinni þýðir ekki eins og svo oft áður skukk og svínarí heldur er bara í nógu að snúast hjá mér þessa dagana – besta mál. Ég fór á fund í tengslum við námskeiðið í Hreyfingu á þriðjudaginn og þar kom ýmislegt áhugavert í ljós, margt sem maður veit, annað sem maður var búin að gleyma ásamt ýmsum nýjum fróðleik. T.d. er gott að kíkja reglulega á þetta hér: http://www.lydheilsustod.is/frettir/naering-og-holdafar/2008/02 

Ég er búin að vera meðvituð um að passa mig á einu og öðru í tengslum við matarræðið, ég skar niður gosdrykkju, brauð- og nammiát ásamt því að ég jók grænmetis- og ávaxtaát. Ég er ekki á fanatísku nótunum en reyni að hugsa um það sem er best fyrir kroppinn minn og falla sem minnst í freistni.

Í gær datt ég brauðát og ég líð fyrir það í dag, puttar og fætur eru bólgnir en jangott á mig að læra þetta ,,the hard way” … læt það mér að kenningu verða. Hafði annars staðið mig óendanlega vel í að sleppa brauðinu, held að magnið alla síðustu viku hafi verið tvær sneiðar eða svo.

Í fyrradag byrjaði ég að elda mér hafragraut á morgnanna…hef alltaf fundist þetta slímugt fyrirbæri en ákvað að prufa aðeins aðra uppskrift sem Ágústa mælti með og mér líkar hún. Hafragrautur þrjá morgna í röð er afrek hjá mér :) og börnin njóta góðs af.

Hafragrautur Ágústu

  • 1/2 bolli haframjöl
  • 1/2 bolli vatn
  • 1/2 bolli fjörmjólk
  • Sjávarsalt og smá agave síróp ásamt 1 msk af hörfræjum.

Ein ummæli to this post.

  1. hey prófaðu kím”brauðið”

    30 g hveitikím
    1 egg
    smá matarsódi
    kúmen
    smá vatn

    hræra saman og setja í plastform með sléttum botni, henda í örbylgjuna í 2 1/2 mín.. láta kólna.. borða svo með áleggi.

    Hveitikímið flokkast sem 250 g af grænmeti vúhú!!!

Ummæli eru ekki leyfð.