Það er glöð og ánægð kona sem skrifar þessar línur hér, um það er sko engin spurning. Í dag kláraði ég C25K hlaupaprógramið, gerði það barasta með ágætis stæl, hljóp 5,1 km á 41.03 og telst útskrifuð.
Ég verð Robert Ullrey ævinlega þakklát fyrir að hafa sett þetta prógram saman og hvet ALLA sem ganga með pínu hlaupadrauma í mallakút að láta vaða á að prufa þetta. Bara passa sig að fara ekki of geyst af stað heldur alltaf að hugsa þetta út frá sjálfum sér.
Í júníbyrjun gat ég ekki hlaupið nema mjög lítið í einu og varð þá móð og másandi, núna hleyp ég 30 mín streit og er langt frá því að kafna á meðan á því stendur. Snilld.

Frábært hjá þér, þá er að einhenda sér í að finna ný markmið og áætlanir til að ná þeim
Gangi þér vel