Varð að fara út að hlaupa áðan…also mig raunverulega langaði svo mikið að komast út, JEY, bara gaman af því … auðvitað lét ég það eftir mér
Ég mætti í hlaupahóp síðastliðinn þriðjudag sem hleypur í hádeginu frá HÍ tvisvar sinnum i viku. Mér fannst ég örlítíð vera út úr kú þarna, hljóp styðst og hægast en sennilega hef ég líka lang, lang, lang minnstu hlaupareynsluna í þessum hóp. Ætlaði aftur á fimmtudaginn en gugnaði … reyni aftur á þriðjudaginn, verð að prufa nokkur skipti áður en ég ákveð hvað ég geri.
Dauðsá eftir því að hafa ekki farið með bóndanum í hlaup í gærkvöldi, ég hefði endað á verlaunapalli…það var bara ein kona að keppa í mínum aldursflokki … hefði verið oggu-pínu-gaman að standa á palli (þrátt fyrir að verða sennilega seinust í mark) hihi

Þú hefðir kannski gaman af að skoða hlaupahópinn “Bíddu aðeins” sem hún Bibba svala er með. Þar eru konur (meirihlutinn) á hinum ýmsu stigum í hlaupinu, af öllum stærðum og gerðum. Mjög skemmtilegur hópur sem allir eru velkomnir í.
Kveðja,
Helga G.