Frá því ég byrjaði á skokkeríinu mínu hef ég notað símann minn til þess að fylgjast með framgangi mála, hversu langt ég væri að hlaupa, hve hratt o.s.frv. Fyrst notaði ég lengi vel forrit sem heitir endomondo, og hélt að það væri ósköp fínt.
Varð pínu efins þegar forritið sagði að ég hefði hlaupið um 6km í 5km hlaupi en hugsaði með mér að ég hefði hlaupið svo mikið aukalega. Áfram notaði ég endomondo en þegar ég fékk aftur töluna 6km í 5km hlaupi þá hætti ég að nota það og fór að nota forrit sem heitir mapmyrun og fannst það betra EN svo fór ég í Brúarhlaupið og enn og aftur sagði forritið rúmir 6km í 5km hlaupi.
Í gær keypti ég mér svo alvöru hlaupaúr og geri nú ráð fyrir að 5km hlaup verði 5km eins og þau eiga að vera en ekki eitthvað meira.

Hvað kostar þetta úr ??